Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Mánudagur, 29. apríl 2013 23:08
|
|
Fyrir stuttu heimsóttum við Hjalta Þórðarson fyrrverandi bónda á Hróðnýjarstöðum í Laxárdal og tókum hann tali og spjölluðum við hann um ævi hans í Dölum, upprunann og vísurnar.
Hjalti og eiginkona hans Inga Guðbrandsdóttir tóku á móti okkur sem höfðingjar væru á ferð á heimili þeirra í Búðardal. Hjalti er Þingeyingur í báðar ættir, en foreldrar hans bjuggu að Hléskógum í Höfðahverfi en Inga er frá Lækjarskógi í Dalasýslu.
Hjalti og Inga hófu búskap sinn í Hjarðarholti árið 1949 en fluttu að Hróðnýjarstöðum árið 1967 og létu síðan af búskap á Hróðnýjarstöðum árið 1999 eða eftir 50 ára búskaparstörf og fluttust þá í Búðardal.
Horfa má á viðtalið við Hjalta hér fyrir neðan og einnig á Dal-varpinu hér á síðunni.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 30. apríl 2013 12:45 |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Laugardagur, 13. apríl 2013 17:49
|
|
Elmar Þór Gilbertsson er einn af þessum duglegu Dalamönnum sem er að gera það gott úti í hinum stóra heimi. Elmar Þór er borinn og barnfæddur Dalamaður en býr nú í Hollandi þar sem hann syngur í stærsta óperuhúsi Hollands, De Nederlandse Opera sem staðsett er í Amsterdam.
Þar hefur honum gengið vel og meðal annars verið ráðinn þar í uppfærslu árið 2015. Elmari hefur einnig verið boðið að taka þátt í einni af stærstu óperuhátíðum í Evrópu, það er til Aix-en-provance í Frakklandi.
Þar mun Elmar syngja töfraflautuna í júlí 2014. En þangað til segist Elmar hafa nóg að gera í smærri verkefnum í Hollandi og meðal annars í Maastricht.
|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. apríl 2013 10:21 |
|
Nánar...
|
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Laugardagur, 06. apríl 2013 10:50
|
|
Alþingismaðurinn og Dalabóndinn Ásmundur Einar Daðason er á þönum þessa dagana um norðvesturkjördæmi ásamt flokkssystkynum sínum í þeim tilgangi að hitta kjósendur. Með mikilli lægni náðum við að króa Ásmund af í stutta stund og taka hann tali.
Í viðtali okkar við Ásmund Einar segist hann meðal annars finna það á jafnöldrum sínum að það sé vilji til þess að búa í sveitum landsins og enginn sérstakur vilji sé til þess að búa á höfuðborgarsvæðinu.
Fólk þurfi hins vegar að hafa í sig og á og það verði að vera ákveðin grunnþjónusta á svæðunum bæði þegar kemur að skólum og menntun, fjarskiptum, samgöngum og öðru. Ásmundur segist þess fullviss að skilningur manna sé að aukast á þessu.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 08. apríl 2013 22:32 |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 5 |