|
Fréttir -
Veiði
|
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Miðvikudagur, 25. júlí 2012 11:08
|
|
Veiði í neðri Haukadalsá í Dölum hefur gengið mjög vel í sumar að sögn veiðivarðar þar en 287 laxar voru komnir þar á land í morgun. Á svipuðu tímabili í fyrra voru rúmlega 200 laxar komnir á land og því má segja að veiðin sem af er sumri sé glæsileg. Leigutaki neðri Haukadalsár síðastliðin ár hefur verið Rolf Doppler en þetta mun vera síðasta ár hans sem leigutaka í Haukadalsá.
Fiskurinn mun hafa tekið vel um alla á og flestir veiðistaðir gefið vel. Þurrkarnir sem voru framan af sumri á Vesturlandi höfðu ekki svo mikil áhrif á neðri Haukadalsá þar sem hún fær vatn sitt úr Haukadalsvatni. Nú horfir hins vegar betur fyrir veiðimenn í Dölum þar sem ágætis væta hefur komið úr lofti síðustu daga þar.
Ert þú með veiðifréttir eða áttu skemmtilega veiðisögu úr Dölum? Sendu okkur póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 25. júlí 2012 12:13 |
|
|
Fréttir -
Veiði
|
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Þriðjudagur, 17. júlí 2012 01:52
|
 Frá Laxá í Dölum er það að frétta að 40 löxum hefur verið landað það sem af er veiðitímabili. Að sögn Árna Friðleifssonar staðarhaldara og veiðivarðar í Laxá í Dölum er orðið mjög vatnslítið en töluvert líf er að sjá í ósnum á flóði og alltaf eitthvað af fiski sem lætur vatnsleysið ekki hafa áhrif á sig og gengur í ána.
Árni segir að ef sú rigningarspá sem er í kortunum standist geti skemmtilegur tími farið í hönd í veiði í Dölum.Á meðfylgjandi ljósmynd má sjá Óskar Pál Sveinsson með fallega 90 cm hrygnu sem tók microhits með önglastærð númer 18 í veiðistaðnum Þegjanda.
Mun Óskar hafa notað 7 punda taum við veiðarnar. Bæði Fáskrúð og Dunká hafa gefið á milli 30-40 laxa hvor það sem af er veiðitímabili en ágætis vatn er í báðum ánum að sögn Árna.
Búðardalur.is mun verða áfram í góðu sambandi við Árna Friðleifsson í sumar og mun flytja frekari fréttir af veiði í umræddum ám þegar þær berast. Hægt er að senda okkur fréttir um veiði í Dölum eða annað í netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 17. júlí 2012 02:19 |
|
Fréttir -
Veiði
|
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson
Sunnudagur, 08. júlí 2012 10:01
|
Veiði hefur gengið þokkalega það sem af er veiðisumri í Dölum að sögn Árna Friðleifssonar staðarhaldara og veiðivarðar í Laxá í Dölum. Stangveiðifélag Reykjavíkur hefur á leigu fleiri ár í Dölum en þær eru Fáskrúð, Dunká og Efri Haukadalsá en Árni hefur einnig umsjón með þeim.
"Það hafa veiðst alls 23 Laxar í Fáskrúð það sem af er og veiðimenn eru að sjá laxa um alla á þannig að framhaldið lítur bara nokkuð vel út" segir Árni í samtali við Búðardalur.is en veiði hófst í Fáskrúð um síðustu helgi.
Árni sagði einnig að þrettán laxar væru komnir á land í Laxá en Laxáin væri orðin mjög vatnslítil og væri fiskurinn farinn að bunka sig í veiðistaðnum Þegjanda, en þar finnur hann skjól í dýpinu.
Dunká hefur gefið 12 laxa það sem af er tímabilinu en veiði hófst einnig þar um síðustu helgi.
Á meðfylgjandi ljósmynd má sjá Magnús Þórarinsson veiðimann með 92cm hæng sem hann veiddi úr veiðistaðnum Þegjanda í Laxá en Magnús sleppti svo laxinum eftir skemmtilega viðureign.
Búðardalur.is mun svo halda áfram að vera í góðu sambandi við Árna Friðleifsson í sumar og vera með reglulegar veiðifréttir úr Dölum.
|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 09. júlí 2012 10:35 |
|
|
|
|
|