Miðvikudagur, 22 Maí 2013

Þurfti að byrja með hauspoka í fyrsta leik Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson    Laugardagur, 04. ágúst 2012 20:28

Dalasýsla pink rams | Ljósmynd af Facebook síðu DalahrútannaÞá er fyrsta keppnisdegi á evrópumeistaramótinu í mýrarbolta lokið og hafa Bleiku Dalahrútarnir gert tvö jafntefli og tapað einum leik, en fyrirliðinn og þingmaðurinn Ásmundur Einar þurfti þó að byrja með hauspoka í fyrsta leik.

Ástæða þess er vegna kæru liðsins Djöfull er ég fullur eins og greint hefur verið frá hér á síðunni og í öðrum fjölmiðlum. Samkvæmt því sem fram kemur á Facebook síðu Ásmundar hefur annars allt gengið vel hjá liðinu, veður er gott og margt fólk á Ísafirði.

Sendum strákunum okkar góða strauma vestur og vonum að fyrsti sigurinn líti dagsins ljós á morgun.

Síðast uppfært: Laugardagur, 04. ágúst 2012 22:30
 

 Búðardalur.is - Menningarmiðja Dalanna © 2013 | Sími: 899 1976 | Tölvupóstur: budardalur@budardalur.is