Laugardagur, 25 Maí 2013

Lögreglufréttir úr Dölum


Umferðaróhapp við Magnússkóga Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Sunnudagur, 12. maí 2013 23:57

Bifreiðin hafnaði ofan í skurði | Ljósm: Karl Ingi KarlssonUmferðaróhapp varð við bæinn Magnússkóga í Hvammssveit á tíunda tímanum í kvöld þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún hafnaði ofan í skurði.

Ökumann sakaði ekki en lögreglan var kölluð á staðinn ásamt kranabifreið frá KM-Þjónustunni sem dró bifreiðina upp. Bifreiðin er mjög mikið skemmd þó hún virðist heilleg á þeim ljósmyndum sem teknar voru á vettvangi í kvöld.

Ekki er vitað hvers vegna ökumaður missti stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum. 

 

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 13. maí 2013 00:25
Nánar...
 
Umferðarslys à Bröttubrekku Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Sunnudagur, 17. febrúar 2013 14:13

Mynd úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á BröttubrekkuAllt tiltækt lið björgunaraðila ì Dalabyggð var kallað út nú í morgun vegna umferðarslyss á sunnanverðri Bröttubrekku.

Samkvæmt fréttavef mbl.is voru tveir aðilar fluttir með sjúkrabifreiðum til Reykjavíkur.

Mikil ísing hefur skapast á Bröttubrekku og víðar í morgun og eru vegfarendur beðnir um að fara varlega af þeim sökum.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 17. febrúar 2013 15:57
Nánar...
 
Dráttarvél brann í Sælingsdalstungu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Föstudagur, 25. janúar 2013 23:31

Mi _gar__ur_S__lingsdalstunga_01081987_MWL_2015_55a_87-252-800-600-100-wm-right_bottom-100-logowatermarkpngSlökkvilið Dalabyggðar var kallað um kl.21:50  í kvöld að bænum Sælingsdalstungu vegna elds sem þar logaði í dráttarvél.

Þegar slökkviliðið kom á staðinn var dráttarvélin alelda en um 20 km eru frá Búðardal að Sælingsdalstungu.  

Bóndi af öðrum bæ í Hvammssveit nýtir aðstöðu í fjárhúsunum í Sælingsdalstungu og var hann við gjafir þegar kviknaði í vélinn en hún mun hafa verið í gangi samkvæmt heimildarmanni Búðardalur.is.  

Dráttarvélin sem er nokkuð gömul stóð nálægt annari vél og mátti litlu muna að einnig hefði kviknað í henni en slökkvilið náði að koma í veg fyrir frekara tjón. 

Engan sakaði í brunanum en dráttarvélin er gjörónýt.

Síðast uppfært: Laugardagur, 26. janúar 2013 00:05
Nánar...
 
Slökkvilið Dalabyggðar kallað að Blönduhlíð Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Miðvikudagur, 10. október 2012 15:37

Sjúkrabifreið í Dölum | Búðardalur.isSlökkvilið Dalabyggðar var kallað nú fyrir stundu að bænum Blönduhlíð í Hörðudal vegna tilkynningar um eld.

Í ljós koma að eldurinn logaði í sumarhúsi sem stendur vestan við sjálft íbúðarhúsið. Að sögn heimildarmanns Búðardalur.is er búið að ráða niðurlögum eldsins en engin mun hafa verið í húsinu þegar eldurinn kom upp.

Ekki er vitað hversu mikið tjónið er eða hver eldsupptök voru. Þó mun slökkvilið hafa fjarlægt ísskáp út úr húsinu. Slökkvilið Dalabyggðar er enn á vettvangi þegar þetta er skrifað.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. október 2012 21:52
Nánar...
 
Konu bjargað úr sjálfheldu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Sunnudagur, 30. september 2012 11:08

HrístindahnúkurBjörgunarsveitin Ósk í Dalabyggð var kölluð út í gærkvöldi um kl.21:00 vegna konu sem hafði lent í sjálfheldu á Hrístindahnúk fyrir ofan Fellsendaskóg í Miðdölum.

Samkvæmd Guðmundi Frey Geirssyni formanni Björgunarsveitarinnar Óskar hafði konan sem var ein á ferð, samband við vinkonu sína sem síðan hafði samband við Björgunarsveitina og óskaði vinkona konunnar eftir aðstoð björgunarsveitarinnar við að koma henni til byggða.

Aðstæður á vettvangi voru talsvert erfiðar að sögn Guðmundar en mjög bratt var þar sem konan lenti í sjálfheldunni fyrir utan það að komið var myrkur þegar þetta var. 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 30. september 2012 21:40
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 9

 Búðardalur.is - Menningarmiðja Dalanna © 2013 | Sími: 899 1976 | Tölvupóstur: budardalur@budardalur.is