Miðvikudagur, 19 Júní 2013

Gleðilegan þjóðhátíðardag Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Mánudagur, 17. júní 2013 00:07

raggibjarna17juniKæru Dalamenn og aðrir landsmenn.

Til hamingju með daginn.

Hátíðarhöld verða í dag í Búðardal og Saurbæ að venju. Safnast verður saman við dvalarheimilið Silfurtún í Búðardal klukkan 14:00 þar sem börnin fá fána og blöðrur.

Gengið verður að Dalabúð þar sem fram fer hefðbundin hátíðardagskrá, ávarp fjallkonunnar, hátíðarræða og hoppukastalar verða á staðnum fyrir börnin.

Síðdegiskaffi verður svo í Dalakoti.

Einnig minnum við á tónleika Ragga Bjarna með valinkunnum heimamönnum í Dalabúð klukkan 17:00 í dag. Einstakur viðburður sem þú skalt ekki missa af.

Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá nánari upplýsingar um tónleikana.

Sjáumst hress og kát.


Síðast uppfært: Mánudagur, 17. júní 2013 10:24
Nánar...
 
Kúnum hleypt út í vorið á Erpsstöðum Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Föstudagur, 14. júní 2013 09:41

Erpsstaðir 9.júní 2013 | Ljósm: Búðardalur.isSunnudaginn 9.júní 2013 buðu bændurnir Þorgrímur og Helga á rjómabúinu Erpsstöðum í Miðdölum fólki að mæta og horfa á þegar kúnum var hleypt út í vorið eftir langa inniveru.

Þeir gestir sem mættir voru að Erpsstöðum skemmtu sér svo við að horfa á þegar kýrnar slettu úr klaufunum og nutu þess að hlaupa út í vorið. - Sjón er sögu ríkari en horfa má á myndband af þessum viðburði hér fyrir neðan.

Ábúendur á Erpsstöðum eru í dag hjónin Þorgrímur Einar Guðbjartsson, frá Kvennahóli á Fellsströnd í Dalasýslu og Helga Elínborg Guðmundsdóttir, frá Kvennabrekku í Miðdölum Dalasýslu. Börn þeirra eru fimm; Guðbjört Lóa, Gunnlaug Birta, Guðmundur Kári, Einar Björn og Hólmfríður Tania.

Síðast uppfært: Föstudagur, 14. júní 2013 10:21
Nánar...
 
Vorhátíð Silfurtúns 2013 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Þriðjudagur, 11. júní 2013 13:07

Vorhátíð Silfurtúns, Þórður læknir sá um grillið | Ljósm.Búðardalur.isLaugardaginn 8.júní 2013 var haldin vorhátíð dvalarheimilisins Silfurtúns í Búðardal. Boðið var uppá grillaðar pylsur og hamborgara ásamt kaffi og með því. Þá komu fram ungir og upprennandi tónlistarmenn úr Dölum og sungu og spiluðu.  

Einnig spilaði harmonikufélagið Nikkólína og félagar úr kór eldri borgara í Dalabyggð tóku nokkur lög. Á meðan á þessu stóð gat yngsta kynslóðin fengið að setjast á hestbak og látið teyma sig hring á túninu fyrir framan Silfurtún. 

Hlýtt var í veðri þennan dag þó sólin hafi ekki látið sjá sig og var ekki annað að sjá en að heimilisfólk að Silfurtúni hafi verið ánægt með daginn.

Sjá myndband frá vorhátíðinni hér fyrir neðan.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 11. júní 2013 16:10
Nánar...
 
Hélt rokkmessu í Stóra Vatnshornskirkju (Jens H.Nielsen) Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Laugardagur, 08. júní 2013 22:34

Jens H.NielsenHér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Jens Hvidtfeldt Nielsen fyrrverandi sóknarprest í Dalaprestakalli.

Jens var sóknarprestur í Dölum frá árinu 1988 til ársins 1995 en þá fluttist hann til Calgary í Kanada þar sem hann þjónaði dönskum söfnuði. Í dag býr Jens í bænum Skive á Jótlandi í Danmörku og starfar þar sem prestur.

Viðtalið má finna hér fyrir neðan eða í Dal-varpinu hér á síðunni.

Síðast uppfært: Laugardagur, 08. júní 2013 23:43
Nánar...
 
Bílvelta við Skógstagl Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Sigurbjörnsson   
Fimmtudagur, 06. júní 2013 19:08

Bifreiðin er töluvert skemmd | Ljósm: Hjörtur V.JörundssonBílvelta varð við Skógstagl nú síðdegis eða skammt frá bænum Álfheimum í Miðdölum.

Engin slys urðu á fólki í þessu óhappi en talsverðar skemmdir urðu á bifreiðinni eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum en draga þurfti bifreiðina af vettvangi með kranabifreið frá KM-Þjónustunni.

Síðast uppfært: Föstudagur, 07. júní 2013 00:12
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 20

 Búðardalur.is - Menningarmiðja Dalanna © 2013 | Sími: 899 1976 | Tölvupóstur: budardalur@budardalur.is